Nýtt námskeið GFR í samstarfi við Heilsueflandi Samfélag Mosfellsbær

Glímufélag Reykjavíkur býður upp á glænýtt glímunámskeið fyrir krakka á aldrinum 5-8 ára í Íþróttamiðstöðinni við Varmá. Námskeiðið er opið öllum börnum.

Krakkaglíma fyrir 5-7 ára hefst föstudaginn 13. September og verður kennt alla föstudaga kl. 16:15 - 17:00 í húsakynnum Aftureldingar.

Námskeiðið kostar 19.900 Kr.

Krakkaglíma fyrir 8 - 10 ára hefst þriðjudaginn 10. September og verður kennd alla þriðjudaga og fimmtudaga kl 14:30.

Námskeiðið kostar 38.900 kr.

Í tímunum er farið yfir undirstöðu atriði og reglur í Brazilian Jiu Jitsu. Tímarnir fara fram í öruggu umhverfi undir handleiðslu reyndra þjálfara.

Ásamt því er lögð áhersla á að börnin öðlist betri hreyfiþroska sem er mjög mikilvægur fyrir framtíðar hreyfigetu barna. Þetta er gert í gegnum ýmsa leiki, ásamt fimleikaæfingum og “dýrahreyfingum”.

Við leggjum mikið upp úr því að virkja börnin og skapa skemmtilegt og heilbrigt æfinga umhverfi þannig að þau öðlist aukið sjálfstraust, félagsfærni og hreyfigetu samhliða því að búa til jákvætt framtíðar viðhorf til hreyfingar og íþrótta.